Frestur er á illu bestur

Hvað gerist þegar bankauppgjörinu líkur?  Margir halda að þá munu íslenskir bankar rísa upp úr öskustónni og verða teknir gildir og góðir inn í alþjóðlegt bankaumhverfi? Þetta er óskhyggja í besta falli.  Hugtakið "íslenskur banki" er nú orðið alþjóðlegt hugtak í fjármálaheiminum og lýsir 21. aldar fjármálastofnun þar sem almenningur og fyrirtæki tapa sínum sparnaði vegna vanhæfni, smæðar og andvaraleysi.

Í framtíðinni verður alþjóðleg bankastarfsemi á Ísland jafn líkleg og úthafsveiðar Svisslendinga.  Enginn leggur sitt sparifé inn á íslenskan banka nema að vera neyddur til þess.  Einokun ríkir nú í íslenskir bankaþjónustu enda allir bankar á einni hendi.  Allt tal um að bankarnir verði seldir og komið í einkaeigu er enn ein óskhyggjan.  Ríkisstjórnir út um allan heim munu á næstu árum selja sína bankahluti á almennum markaði.  Af hverju eiga erlendir fjárfesta að kaupa íslenskan banka þegar þeir geta keypt banka í öðrum löndum?

Alla vega munu engir heiðarlegir kaupendur finnast að íslensku bönkunum en braskarar og spekúlantar með íslenska lögfræðinga og endurskoðendur í eftirdragi munu gera sig breiða og ganga í augun á íslenskum stjórnvöldum og blaðamönnum.

Næsti kafli nefnist: "Einkavæðing íslensku bankanna" - taka 2.  Þar munu margir gamlir góðkunningjar Þjóðarinnar birtast aftur!

 


mbl.is Uppgjöri vegna bankanna enn frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband