Munu erlendir fiskkaupendur sætta sig við þetta?

Erlendir sjávarútvegskaupendur hafa val.  Þeir þurfa ekki að kaupa af Íslendingum.  Með því að versla í krónum hafa þeir fengið afslátt sem hefur verið kærkominn í kreppunni erlendis.  Neytendur í Evrópu borga ekki hvaða verð sem er fyrir íslenska fiskinn.  Ný gjaldeyrislög er plástur ofaná plástur sem gæti leitt til minnkandi útflutningi og verri birgðastöðu fyrir sjávarútveginn. 

Með þessu áframhaldi verður ekki langt að bíða að við fáum evrubúðir eins og gömlu dollarabúðirnar í austantjaldslöndunum forðum.  

Krónubréfin ætla að verða þjóðinni dýr.


mbl.is Gjaldeyrisfrumvarpi dreift
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Púkinn

Góður punktur....

Púkinn, 31.3.2009 kl. 18:27

2 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Krónan (hennar stjórnun) er þjóðinni dýr!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 31.3.2009 kl. 18:28

3 identicon

Ég bý erlendis og kaupi alltaf íslenskan / norskan fisk (ekki alltaf aðgreint hér). Verðið á honum hefur ekki lækkað úti í búð svo ef fiskkaupendur hér í Bretlandi eru að fá hann ódýrara þá fer sá góði í þeirra vasa en ekki minn. Bara svona til fróðleiks.

AS (IP-tala skráð) 31.3.2009 kl. 19:48

4 Smámynd: Helga Sigrún Harðardóttir

Eða kannski í vasa þeirra innlendu útflytjenda sem um ræðir?

Helga Sigrún Harðardóttir, 31.3.2009 kl. 20:09

5 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Verðið til neytenda er líklega ekki enn farið að skila sér samkvæmt AS.  En verð til stofnanna og veitingahúsa sem kaupa í magni er líklega farið að síga.  Þessi lög eru auðvita sett til að koma í veg fyrir hrun á fiskverði.  Nú er ljóst að höft verða hér svo lengi sem krónan tórir.

Andri Geir Arinbjarnarson, 31.3.2009 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband