Kostar 15% niðurskurð í heilbrigðiskerfinu

Hvaðan koma 15ma kr. til að ljúka þessum minnisvarða um hrunið?  Halli á ríkisfjárlögum er um 200ma svo ekki verður þetta fjármagnað af tekjum ríkisins.  Þetta verður eingöngu gert með tilfærslum innan ríkisins.  Þessi upphæð jafngildir 15% niðurskurði í heilbrigðiskerfinu.  Af hverju þarf þetta hús að vera tilbúið 2011, af hverju ekki 2014 og nota peningana sem sparast til að draga úr sparnaði í heilbrigðiskerfinu sem alltaf bitnar fyrst á sjúkum, öldruðum og örykjum? 


mbl.is Fjármögnun Tónlistarhúss ólokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Já húsið getur beðið til betri tíma. Forgangsröðun er mikilvægust.

Ólafur Þórðarson, 31.3.2009 kl. 16:20

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þó ég sé tónlistarunnandi þá má þetta alveg bíða eins lengi og þörf er á. Smá minnisvarði á staðnum til að minna okkur á ruglið sem viðgekkst væri kanski við hæfi.

Finnur Bárðarson, 31.3.2009 kl. 16:38

3 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Mér finnst það eigi að klára húsið að utan og steypa upp kjallarana á húsunum í kring. Þá stendur húsið tilbúið að utan og snyrtilegt í kring. Það verður bara sómi að því. Þetta kostar kannski 20-30% af því sem það kostar fullbúið. Þannig getur það beðið í nokkur ár þar til fjármunir eru til að ljúka innanhússfrágangi.

Ekkert liggur á að fara í að innrétta húsið, hvað þá að setja fé í að reka það í þessu árferði.

Friðrik Hansen Guðmundsson, 31.3.2009 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband