AGS fingraför á þessu fjárlagafrumvarpi

Aðlögunaraðgerðir upp á 104 milljarða kr. í formi skattahækkana upp á 61 ma og niðurskurðar sem nemur 43 ma er allt of hörð aðlögun og greinilegt er að AGS er höfundur að þessu frumvarpi.

Nær hefði verið að ná hallanum niður í  40 ma á fjórum árum og dreifa þessu jafnar yfir lengra tímabil. 

Fyrsta skrefið þarf að vera stórt, hjá því verður ekki komist, en betra hefði verið að draga úr skattahækkunum um 20 ma niður í 41 ma, til að slökkva ekki alla von um endurreisn einkageirans.

Það er engin tilviljun að aðgerðir um skuldaaðlögun eru kynntar degi áður en fjárlagafrumvarpið sér dagsins ljós.  Aðgerðir til að hjálpa skuldurum eru fyrst og fremst til að þeir lendi ekki í greiðsluerfiðleikum við ríkið.  Það er tekið úr einum vasa og fært í annan. 


mbl.is Reikna með 87 milljarða halla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raunveruleikinn kemur Lilju á óvart

Það er alveg makalaust hvað erlendur raunveruleiki vefst fyrir Íslendingum.

Útlendingar eru alltaf að koma okkur á óvart, þeir hugsa öðruvísi.

En er það óeðlilegt, þeir eru ekki aldir upp og menntaðir í íslenskum raunveruleika?

Það hefur legið fyrir í marga mánuði að AGS, Icesave og EB er allt tengt og verður ekki aðskilið með 3 íslenskum kennitölum.  Þetta er einfaldur en óþægilegur sannleikur sem fáir íslenskir stjórnmálamenn vilja viðurkenna.  Miklu betra að koma fram við alþjóð eins og álfur út úr hól.

 


mbl.is „Þá eruð þið bara vandamál fyrir framkvæmdastjórnina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna látin beygja sig undir lýðskrumið

Það er alltaf sorglegt þegar sannleikurinn er látinn víkja fyrir lýðskrumi.  Greinilegt er að Jóhanna hefur neyðst til að snúa blaðinu við í Icesavemálinu til að bjarga ríkisstjórninni og koma því í gegnum alþingi.

Það hörmulega við þetta mál er að nú verður Icesave samþykkt af því að það er "ósanngjarn krafa" okkar nágranna en ekki vegna þess að við ætlum að standa við okkar orð og samþykktir.

Við ætlum að fela okkur á bak við "óréttlátt" regluverk útlendinga.  Ríkisstjórnin þvær hendur sínar eins og Pontíus Pílatus gerði þegar skrílinn heimtaði að Jesús yrði krossfestur.  

Icesave verður okkar kross að bera og okkar nýja maðkaða mjöl sem sýnir kynslóðum framtíðarinnar hversu vondir og svikulir útlendingar eru.  Á Íslandi býr hrein og óspillt þjóð í dásamlegri einangrun frá hinum spilltu og vondu öflum erlendis.  Þetta er okkar aldargamla heimssýn sem ekki má hreyfa við og er okkar stoð og stytta í erfiðleikum. Við þekkjum jú ekkert annað!


mbl.is Ekki sanngirni að við borgum, en...
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

... en niðurskurðarhraðinn er í okkar valdi

Það sem Jóhanna segir ekki er á hvaða hraða við þurfum að fara í þennan niðurskurð.  AGS vill að við skerum niður um 4 %stig á ári og fara með hallann niður í núll á þremur árum.  Þetta er ekki samkvæmd reglubók EB þar sem hraðinn er 2.5 %stig á ári og nóg er að fara með hallann niður í 3% til að byrja með. 

Þetta er það sem þarf að ræða.  Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri AGS, var fyrrum fjármálaráðherra Frakklands og skilur þetta því mæta vel.

Ef við ætlum að semja við Breta og Hollendinga (og þar með AGS) um Icesave eigum við að fara fram á endurskoðun á AGS prógramminu og fá hjálp Seðlabanka Evrópu til að styðja við krónuna.

 

 


mbl.is Niðurskurður er óhjákvæmilegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíll og hús flokkuð í fyrsta og annan flokk

Ekki verður betur séð en nýjar reglur um leiðréttingu á greiðslubyrði og aðlögun skulda munu leiða til tvöfalds markaðar með bíla og húseignir í framtíðinni.

Þeir sem eru svo lánsamir að þurfa ekki að fara í leiðréttingarferli geta áfram selt sínar eignir án vandkvæða svo framalega sem kaupandi er til staðar sem er tilbúinn að borga sanngjarnt verð.

En hvað með þennan nýja hóp sem fær leiðréttingu og borgar af lánum eftir greiðslugetu?  Hvernig selur þessi hópur sínar eignir og á hvaða verði?  Á nýr kaupandi að taka yfir gömlu lánin?  Er hægt að gera lánin upp við sölu, ef svo, hvernig og á hvaða verði?  

Segjum svo að fasteignakaupandi (sama á við kaupendur af notuðum bílum) hafi fundið tvær samskonar 4ja herbergja íbúðir sem hann hefur áhuga að gera tilboð í.   Önnur er með gamalt lífeyrissjóðslán en hin er með myntkörfulán í greiðsluaðlögun.  Við hvað mun verðtilboðið miðast í seinna tilfellinu? Greiðslugetu kaupanda eða seljanda? Og hvað ef kaupandinn á aðrar eignir?

Ansi er ég hræddur um að þeir fjársterkustu og þeir sem hafa bestu greiðslugetuna muni sniðganga eignir sem eru í greiðsluaðlögun og þar með skapa tvöfaldan markað. 

Eignir sem eru fyrir utan greiðsluaðlögun verða líklega mun auðseljanlegri og seljast á hærra verði en hinar.  Það er nefnilega alltaf hætta á að þessum lögum verði breytt svo kaupendur geta varla treyst því að þeir verði ekki krafðir fullrar greiðslu á upphaflegum höfuðstól lánsins. Óvissa um afskriftir mun því skapa tvöfaldan markað.

Auðvita munu þessar reglur hjálpa fólki í greiðsluerfiðleikum núna en þær geta líka sett þetta sama fólk í eins konar stofufangelsi og gert eignarmarkaðinn hér á landi mjög stirðan og óþjálan.


Áfellisdómur fyrir íslenska lögmenn

Þessi niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur í SPRON málinu er því miður mikill áfellisdómur fyrir íslenska lögmenn sem unnu þarna fyrir sína skjólstæðinga.

Hvernig í ósköpunum voru kröfur ekki nógu vel reifaðar og hvers vegna voru skjöl ekki þýdd.  Þetta hlýtur að teljast lágmarkskrafa í dómsmálum.

Gaman væri að vita hverjir voru lögmenn erlendu kröfuhafanna sem greinilega hafa ekki unnið sína heimavinnu nógu vel!

 


mbl.is Kröfuhafar vonsviknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

AGS þvingar Ögmund út

Afstaða AGS til Icesave hefur nú kostað ríkisstjórnina einn ráðherra og þar með veikt hana umtalsvert.

Þessi afsögn breytir hins vegar ekki þingmeirihluta stjórnarinnar í Icesavemálinu og því er erfitt að sjá að þetta sé einhver töfralausn.

Icesave öngþveitið magnast nú dag frá degi með ómældum kostnaði fyrir alla landsmenn.

 

PS. Ögmundur er nú kominn í góða stöðu að verða næsti forseti Íslands.  Það væri kostulegt ef bæði Ögmundur og Dominique Strauss-Kahn yrðu þjóðhöfðingjar 2012! Þeir hefðu um nóg að spjalla ef þeir hittust í opinberum heimsóknum á Íslandi og Frakklandi.


mbl.is Ögmundur segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerist í næstu viku?

AGS, Hollendingar og Bretar geta beðið og sýnt þolinmæði eins og alltaf hefur legið fyrir.  Nú eru stjórnvöld hins vegar að falla á tíma og hvað þá?

Við getum ekki beðið lengur en fram að helgi segir forsætisráðherra. Hvað gerist svo á mánudaginn?  Við höfum engin tromp á okkar hendi.  

Ætli menn yppi ekki bara öxlum í London og Washington og segi: "so what"


mbl.is Þarf niðurstöðu fyrir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær auglýsing

Helgi Felixson hefði ekki getað fengið betri auglýsingu en þetta klaufalega útspil Jóns Ásgeirs. 

Það verða allir að sjá þessa mynd. 

Hvað er Jón Ásgeir að fela?  


mbl.is Vill að viðtölum verði eytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættur að versla í Lyf og Heilsu

Ekki dettur mér í hug að versla í Lyf og Heilsu og þar með styðja þennan vafasama gjörning sem virðist eingöngu hafa verið gerður til að bjarga eigendum á kostnað almennings.

Með því að versla í þessum "útrásarverslunum" er fólk að borga tvisvar fyrir vöruna.  Fyrst borgar það við kassann og svo í hækkuðum sköttum þar sem þessar eignir renna ekki upp í skuldir og þar með til ríkisins.  


mbl.is Bræðurnir seldu sjálfum sér Lyf og heilsu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband