14.8.2009 | 06:55
Icesave = hernaðarútgjöld = 2.5%
Er ekki ágætt að sættast á 2.5% af landsframleiðslu sem greiðslu af Icesave? Það er sama tala og Bretar eyða í hernaðarútgjöld og þar sem við höfum ekki her og Icesave á að bjarga okkur frá efnahagshruni passar þetta vel í bókhaldið!
Bandaríkjamenn eyða um 4.5% af þjóðartekjum til hernaðar svo 3.5% talan rúmast innan hernaðarútgjaldarammans.
Vandamálið er að þessi útgjöld skapa ekki vinnu hér á landi nema að takmörkuðu leyti og fara ekki í framleiðslu hér. Kannski getum við reynt að fá Hollendinga og Breta til að "endurfjárfesta" hluta af þessu fjármagni í íslenskum atvinnurekstri.
Icesve yrði þá okkar "hernaðarútgjalda" póstur í ríkisbókhaldinu.
Engar greiðslur án hagvaxtar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:58 | Facebook
Athugasemdir
Í mínum huga getur enginn samningur um IceSave orðið verri en það að fá D og B ríkisstjórn yfir sig aftur.
Allt er betra en íhaldið. Hvílum okkur á þeim næstu áratugina!
Kama Sutra, 14.8.2009 kl. 20:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.