22.7.2009 | 20:37
Pínlegur varnarleikur
Adam var ekki lengi í paradís. Blekið er varla þornað af ESB aðildarumsókninni fyrr en deilur byrja.
Barnaskapur og einfeldni Íslendinga er skiljanleg og kannski eina afsökun okkar. En að halda að við getum sótt um aðild að ESB án þess að Icesave, sem er hápólitískt og eldfimt innan ESB, skipti hinar þjóðirnar engu máli og sé ekki tengt umsókninni er fráleitt. Allt sem viðkemur Íslandi tengist ESB umsókninni beint eða óbeint.
Svona formlegt samband við okkar nágrann þar sem við erum með yfirklóri að reyna að spila vonlausa vörn er aumkunarverð.
Ætli þeir segi ekki í London um Össur "when in a hole stop digging"
Hafði samband bæði við Breta og Hollendinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:42 | Facebook
Athugasemdir
En hvað með minnisblaðið frá 2006? Hver getur ákveðið að taka það ekki með? Og með hvaða rökum?
Margrét Sigurðardóttir, 23.7.2009 kl. 00:34
Margrét,
Aðeins Svavar getur svarða því!
Andri Geir Arinbjarnarson, 23.7.2009 kl. 08:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.