14.5.2009 | 11:00
IMF og Seðlabankinn á öndverðum meiði
Útlendingarnir Franek Rozwadowski og Svein Harald Øygard virðast ekki vera sammála um hvað sé best fyrir Ísland í dag!
Frank segir að stýrivextir geti ekki lækkað meir að sinni og að höftin verði hér um umtalsverðan tíma. Svein vill hins vegar myndarlega stýrivaxtalækkun strax í júní og í kjölfarið slaka á höftunum.
Hvers vegna eru þeir ekki sammála um aðgerðir? Hvað liggur hér að baki? Ætli þetta snúist um forgangsröðun? Hver ætli hafi betur í þessari deilu?
Ekki aðeins hefur IMF frestað greiðslu á láni til okkar nú er hann orðinn fúll út í Seðlabankann sem er auðvita óbeint skot á ríkisstjórnina og hennar seinagang í aðgerðum í ríkisfjármálum.
Nú er vont að hafa ekki Þjóðhagsstofnun sem gæti veitt okkur innsýn inn í þessi mál á óháðan og sjálfstæðan hátt. Í staðinn verður þjóðin að reiða sig á getgátur.
Þaulsetin gjaldeyrishöft | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.