Fons stendur betur en mörg önnur gjaldþrota fyrirtæki!

Þessi viska birtist á mbl.is án nokkurrar gagnrýni.  Eignir Fons eru taldar 10-12ma kr en skuldir um 20 ma kr.  Mismunurinn er 8-10 ma. kr eða sem samsvarar þegar boðuðum niðurskurði í heilbrigðiskerfinu þar sem bráðaþjónusta, öldrunarþjónusta og heilsugæsla hafa verið skorin veruleg niður.

Eina sem Pálmi hefur að segja við hluthafa er:

 "að félagið standi betur en mörg önnur félög sem nú séu að fara í þrot"

Ekki er öll vitleysan eins.  Hins vegar spyr maður sig, hver og hvernig á að endurreisa íslenskt athafnalíf ef þetta eru viðhorfin?


mbl.is Landsbankinn stærsti kröfuhafinn í Fons hf.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Engin þörf fyrir spaugstofuna, þetta skrifar sig orðið sjálft.

Viðar Ingvason (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband