Tómas Þorvaldsson GK10 landar í Grimsby

Svona byrjaði fréttatími BBC síðdegis.  Þar er gerð grein fyrir hinum mikla uppgangi á fiskmarkaðinum í Grimsby sem heimamenn eru himinlifandi yfir.  Þessu er mest íslenskum skipum að þakka og BBC útskýrir að mun hagstæðara sé fyrir íslensk skip að landa í Grimsby en í sínum heimahöfnum.  Skipstjórar fá greitt í hörðum gjaldeyri og fiskmarkaðurinn í Grimsby borgar sjómönnum innan 7. daga.  Líkur fréttinni á því að ekki sé langt í það að fiskverð lækki fyrir breska neytendur.

Já, svona virka íslensk gjaldeyrishöft.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Andri

ég var að skrifast á við þig í gær á bloggi Frosta. Vil ekki halda áfram þar, en vil senda þér þetta.

 Ég þekki ágætlega til í Grimsby og allir bátarnir sem hafa selt þar undanfarið frá Íslandi eru á vegum fyrirtækis sem ég veiti forstöðu, þeir eru 4 á einum mánuði. Ég hef séð allar fréttir og verið sambandi við þessa menn þarna. Það er verið að leggja niður nokkrar verksmiðjur í Grimsby. Þeir eru hins vegar ánægðir að fá fisk með skipum þarna niðureftir, því gæðin eru betri og hann er ferskari en gámafiskur. Það er ekki uppgangur í Grimsby, og þeir eru að leita eftir aðstoð frá ESB. Það eru m.a. íslensk fyrirtæki sem eru að draga saman seglin þarna, Bakkavör. 

Finnst nauðsynlegt að koma þessu á framfæri við þig.

kveðja

ET

Eiríkur Tómasson (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 12:35

2 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Þakka þér fyrir.  Alltaf gott að fá fréttir frá fyrstu hendi.  Blaðamenn eru stundum ekki alltaf með á nótunum

Andri Geir Arinbjarnarson, 24.3.2009 kl. 19:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband