Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
22.9.2009 | 17:31
Pólitískir stjórnarhættir að íslenskum sið
Er furða að erlendir kröfuhafar skilji ekki íslenska stjórnarhætti sem ganga út á að innlendir og útvaldir pólitískir aðilar sitja báðum megin við borðið og semja við sjálfa sig.
Það er barnaskapur að halda að útlendingar sætti sig við svona vinnubrögð og þaðan af síður pólitískar ákvarðanir.
Skilanefndir eru undir miklum pólitískum þrýstingi að fá erlenda aðila inn í bankana hér og þá spyr maður sig hvort hér sé um raunverulegt val að ræða. Eru þessir tveir kostir hjá skilanefnd Glitnis settir upp til málamynda, eða hvað?
Eitt er víst, svona stjórnarhættir eru ekki til þess fallnir að byggja upp traust eða laða erlenda fjárfesta til landsins.
![]() |
Skilanefnd Glitnis gagnrýnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.9.2009 | 11:04
"Muna hlustendur eftir orðinu: misskilningur"
Muna menn eftir hugtakinu "misskilningur" og í hvaða samhengi það var notað hér fyrir hrun og af hverjum?
Ennfremur er spurt um orðatiltakið: "lögbrot byggt á misskilning" sem mun eiga uppruna sinn á svæði í kringum Borgartún í Reykjavík rétt eftir síðustu aldamót.
Ætli svona verði ekki spurt eftir 50 ár á RÚV?
![]() |
Segir um misskilning sé að ræða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.9.2009 | 09:54
Skuldaniðurfelling à la Jón Ásgeir
Það líður ekki sú vika að ekki berast nýjar upplýsingar um gjörninga gömlu bankanna og þeirra elítu viðskiptavina. Þeirri spurningu sem er enn ósvarað eftir tæpt ár er þessi: voru þessir gjörningar allir gerðir í þáu hluthafa? Geta stjórnir gömlu bankanna varið og rökstutt þessi viðskipti? Eigum við óháða fagaðila með 20 ára reynslu í alþjóðlegum bankarekstri sem geta farið ofaní saumana á þessu? Hverjir eru þessir sérfræðingar?
Það er æ betur að koma í ljós hvernig elítu viðskiptavinir bankanna eignuðust hús og eignir í gegnum eignarhaldsfélög án persónulegra ábyrgða. Hér er grunnuppskrift:
A tekur 50 m lán til húsnæðiskaupa frá banka B. A er með persónulega ábyrgð sem hann vill losna við og eignast húsið skuldlaust. A stofnar því C ehf sem hefur það verkefni að sýsla með hlutabréf. A fer í banka B og segist hafa áhuga á að kaupa 50 m í hlutafé bankans. Stjórnendur bankans sem allir eru með bónusa tengda hlutabréfaverði bankans eru himinlifandi þar sem þetta mun styðja við verðið á bréfunum. Vandamálið er að A á enga peninga til að kaupa bréfin svo hann biður banka B að lána C ehf 100 m með veði í bréfunum sjálfum. Þetta gengur í gegn og A notar 50 m til að greiða húsnæðislánið sitt niður að fullu og hina 50 m til að kaupa bréf í banka B. Þar sem bréfin tvöfaldast yfirleitt á hverju ári er bankinn ekki áhyggjufullur yfir þessu. Á næsta ári mun verð bréfanna dekka lánið. A er nú áhyggjulaus vitandi að hann er með allt sitt á þurru, húsið skuldlaust, hagnaðurinn af hlutabréfunum er allur hans en tapið lendir allt á hluthöfum bankans og skattgreiðendum.
Auðvita eru alls konar variantar á þessu til að flækja málið en í grunninn er þetta allt hið sama, einum hóp er hyglað á kostnað annars. Málið er, gerðu allir stjórnarmenn gömlu bankanna sér grein fyrir hvað var að gerast hér?
![]() |
Söluverð til kaupa bréfa af eigendum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2009 | 23:33
52% svarhlutfall er ekki traustvekjandi
Lágt svarhlutfall bendir til að margir hafi hreinlega ekki skilið spurningarnar. Niðurfelling á verðtryggingu án þess að benda á hvað komi í staðinn er að gefa í skyn að vextir falli niður í núll.
Gera þeir sem vilja niðurfellingu á lánum sér grein fyrir að það þýði skattahækkanir?
Allir vilja lægri afborganir og niðurfellingar á lánum ef það er í boði ókeypis.
Hvað segir þessi skoðanakönnun okkur sem við vissum ekki?
![]() |
Ná ekki endum saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2009 | 18:35
Ný strategía á Morgunblaðinu?
Sú frétt birtist í dag á Eyjunni að Davíð Oddsson sé orðaður við ritstjórnarstól Morgunblaðsins. Auðvita geta blaðamenn Morgunblaðsins ekki tjáð sig um þetta fyrr en eigendur þeirra gefa þeim grænt ljós.
Ef Davíð tekur upp stöðu ritstjóra á Morgunblaðinu er hér horfið aftur í tímann þegar gömlu flokksblöðin voru við líði. Morgunblaðið verður þá aftur flokksblað Sjálfstæðisflokksins. Þetta er auðvita ákvörðun eigenda blaðsins en spurningar vakna um hvernig og hver eigi að fjármagna Morgunblaðið í framtíðinni.
Dagblaðarekstur er í járnum í flestum löndum og erfitt er að sjá hvernig Davíð muni auka sölu blaðsins eða gera það eftirsóknara fyrir auglýsendur.
Svo verður frábært að fylgjast með hvernig Morgunblaðið muni taka á rannsóknarskýrslu um hrunið seinna í haust ef Davíð verður ritstjóri.
Eitt er víst, að með Davíð við stjórn á Morgunblaðinu og Jón Ásgeir togandi í spottana hjá Fréttablaðinu munu vefmiðlar og RÚV styrkjast og dafna.
![]() |
Ekki búið að ráða nýjan ritstjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2009 | 11:36
AGS 60% verri en EB!
Kröfur AGS í ríkisfjármálum Íslands eru 60% verri en hjá nágrönnum okkar innan EB. Það er athyglisvert að skoða fjárlagafrumvörp Svía og Íra fyrir 2010 en bæði löndin eru innan EB og þurfa að halda sér innan Maastricht ramma EB þegar kemur að ríkisfjármálum.
EB miðar við að lönd nái halla niður í 3% en ekki 0% og auk þess gefur EB aðildarríkjum mun rýmri tíma til að ná niður hallanum. Hallahraðinn hjá EB, ef svo má komast að orði, er 2.5% á ári miðað við 4% hjá AGS sem er 60% meiri hraði.
Það hafa flestir hagfræðingar sagt að ómögulegt sé að hafa stjórn á og standa vörð um velferðakerfið á þessum "ólöglega" hraða AGS.
Hver ætlar að stíga á bremsuna hér!
![]() |
Fjárlagafrumvarp gegn atvinnuleysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.9.2009 | 11:09
Einkaspítali er eina raunhæfa lausnin!
Ef Ögmundur getur ekki rekið St. Jósefsspítala verður að breyta honum í einkaspítala og standa vörð um þá þekkingu og tæki sem þarna eru og hugsa fyrst og fremst um heilsu og velferð almennings en ekki úrelta hugmyndafræði.
Við verðum að viðurkenna þann sára sannleika að ríkið getur ekki lengur haldið uppi almennri heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða eins og hún tíðkaðist hér á árum áður. Sá tími er liðinn og mun varla koma aftur í tíð núverandi kynslóðar.
Það verður að hugsa fyrst og fremst um hagsmuni sjúklinga þó það þýði að sumir þeirra verði að kaupa sér prívattryggingar og borga úr eigin vasa. Almenningur er hvort eð er vanur að borga fyrir aðgang að heilbrigðisþjónustu og hefur lítið val þar um.
Þetta snýst ekki aðeins um peninga heldur hugmyndafræði sem brátt fer að kosta mannslíf.
![]() |
St. Jósefsspítala lokað hægt og hljótt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.9.2009 | 08:51
Icesave pólitík bremsar alla endurreisn
Lágt gengi og háir vextir stöðva alla uppbyggingu hér á landi og hafa sent efnahagslífið í djúpfrysti. Stýrivextir Seðlabankans stýra engu nema frostinu í kistunni.
Lykilinn að þeirri frystikistu er lausn á hinni hápólitísku Icesave deilu. Við komust ekki út úr þessari kreppu nema með erlendri hjálp en hún fæst ekki nema með laun á Icesave.
Nýrómantísk þjóðernislausn þar sem við neitum að borga Icesave, sendum AGS og EB heim og tökum völdin í okkar eigin hendi er falleg og lokkandi en því miður alls endis óraunveruleg.
Því lengur sem Icesave dregst á langinn því lengur mun taka að afþýða efnahaginn hér.
![]() |
Erlendar skuldir 30% of háar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2009 | 09:30
Icesave apinn á herðum íslenskra stjórnvalda!
Í engilsaxnesku máli er stundum talað um "monkey on your back" þegar aðilar lenda í erfiðum samningagerðum eða verkefnum. Ein strategían er að koma apanum strax af sér og yfir á herðar andstæðingsins svo öll spjót standi á honum.
Icesave deilan er gott dæmi um ójafnan apaleik. Bretar og Hollendingar geta haft sinn apa inn í lokuðum fundarherbergum en á Íslandi leikur apinn lausum hala og stekkur á milli herða íslenskra ráðherra öllum til mikillar hrellingar.
Nú bíða allir spenntir yfir hvernig Íslendingar koma apanum aftur yfir á herðar Breta og Hollendinga.
![]() |
Icesave í utanríkismálanefnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2009 | 07:11
Vandræði Dominique Strauss-Kahns og stjórnar IMF
Töf á afgreiðslu lána til Íslands frá AGS er orðin hin vandræðislegasta fyrir AGS og stjórn hennar. Það er greinilegt að búið er að draga AGS inn í hápólitíska deilu sem stofnunni veit hvorki hvernig á að taka á eða útskýra.
Þessi staða stefnir sjálfstæði stofnunnar í hættu og er dregur úr trúverðugleika hennar. Það er ótækt að einstaka ríki (Bretar og Hollendingar) misnoti AGS til að þrýsta á um aðgerðir í málum sem koma stofnuninni ekki beint við. Þessu verður að mótmæla kröftuglega.
Íslensk stjórnvöld eiga að taka þetta upp við Japani og Bandaríkjamenn, þær þjóðir sem eru okkur vinveittar og hafa völd í stjórn sjóðsins.
![]() |
Farið verði fram á skýringar AGS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |