Forseti vor og Facebook

Íslenskt lýðræði er eins og skyrið okkar, alveg einstætt á þessari jörðu.  Alþingi og ráðherrar eru að verða að stofustássi sem brátt flyst yfir á þjóðminjasafnið.

Í dag er það Forseti vor og Facebook sem blífur.  Það skiptir engu máli hvað ráðherrar blaðra og lofa eða hvernig Alþingi vinnur.  Á endanum er Facebook sem ákveður og Forsetinn framfylgir.

Í raun má segja að sú aðför sem nú er í gangi gegn hinu 19. aldar konungsinnleidda þingræði er mun athyglisverðari en þetta Icesave mál. 

Erum við að leggja línurnar fyrir nýjum lýðræðissiðum?


mbl.is Íslendingar munu draga úr losun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fari svo að forsetinn beiti synjunarvaldi eftir undirskriftasöfnun þá eru það tæplega nein nýmæli á heimsvísu.

Það tíðkast víða að hægt sé að knýja fram atkvæðagreiðslu um eitthvað mál með undirskriftasöfnun. Sumstaðar (t. í Sviss og Kaliforníuríki) er það meira að segja ekki bundið við að hafna máli heldur er beinlínis hægt að setja frumvörp beint í almenna atkvæðagreiðslu framhjá fulltrúalýðræðinu með undirskriftum visst margra kjósenda.

Á báðum stöðum sem ég nefni eru almennar atkvæðagreiðslur um tiltölulega minniháttar mál, jafnt sem stórmál, algengar.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 6.12.2009 kl. 22:39

2 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Hans,

Það sem er athyglisvert er notkun á Facebook og netinu til að miðla upplýsingum og ná fram undirskriftum á mettíma.  

Ég hef skrifað aðrar færslur um beinna lýðræði eins og tíðkast í Sviss og að við þurfum að huga að þessu þegar nýtt stjórnlagaþing kemur saman.

Andri Geir Arinbjarnarson, 6.12.2009 kl. 22:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband