5.12.2009 | 09:56
Gagnrýni Bernanke á einnig við Ísland
Seðlabankastjóri Bandaríkjanna hefur harðlega gagnrýnt þá ákvörðun Gordon Brown að færa eftirlit með bönkum frá seðlabankanum yfir í nýja stofnun eins og segir á mbl.is:
Bernanke segir þá ákvörðun Browns um að láta Seðlabanka Englands hætta að hafa eftirlit með bönkunum í landinu hafi haft skelfilegar afleiðingar.
Þessi gagnrýni á einnig við hér á landi þar sem þáverandi stjórnvöld gerðu það sama hér og Bretar gerðu nefnilega að flytja bankaeftirlit yfir í sérstaka stofnun sem nefnist FME.
Bernanke gagnrýnir Gordon Brown | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þú er hreint ótrúlegur Andri Geir.
BB er að tala um eftirlit með öllum bönkum í UK og þar með talið þeim íslensku.
En þú snýrð þessu strax upp á sjálfan þig játar á þig sökina.
Guðmundur Jónsson, 5.12.2009 kl. 10:06
Guðmundur,
Ég held að þú hafir misskilið þennan pistil.
Hverju er ég að snúa upp á mig þegar ég bendi á að gagnrýni BB á að láta seðlabanka ekki fara með bankaeftirlit eigi líka við hér? Þetta snýst um starfsvettvang seðlabanka.
Ef Seðlabanki Englands og Seðlabanki Íslands hefðu farið með bankaeftirlit hvor í sínu landi er ekki víst að svo illa hefði farið með íslensku bankana.
Andri Geir Arinbjarnarson, 5.12.2009 kl. 11:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.