30.11.2009 | 18:17
Icelandair í óskasamkeppnisstöðu
Rekstur Icelandair virðist í góðum málum áður en til fjármagnsliða kemur enda er félagið í góðri samkeppnisstöðu. Flugmiðar eru verðlagðir í evrum en rekstrarkostnaður er að mestu í krónum og dollurum. Launakostnaður hefur hrapað mældur í evrum og eldsneytisverð er lægra nú en í fyrra.
Allt þetta hjálpar en dugar skammt þegar efnahagsreikningurinn er illa laskaður af skuldum.
Hins vegar er ekki ljóst að þessi verðstrategía haldi. Icelandair er ekki lengur samkeppnishæft á flugleiðum sem bandaríks og bresk flugfélög eru sterk. T.d. er Icelandair ekki lengur í hópi ódýrustu flugfélaga á leiðinni London til New York eins og fyrr á árum. Nú er Iceandair um 33% dýrara á þessari flugleið en þeir ódýrustu.
Því miður fá Íslendingar ekki að njóta betri samkeppnisstöðu félagsins í hagstæðari flugfargjöldum. Allt gengur út á að halda uppi eins háu verði til að geta borgað skuldir. Nokkuð sem landsmenn verða að sætta sig við í farmtíðinni.
Fólk þarf ekki aðeins að borga sínar eigin skuldir og skuldir ríkisins í formi hærri skatta, skuldir fyrirtækja fara líka á bakið á sliguðum landsmönnum í formi hækkandi verðs á vörum og þjónustu.
Afkoma Icelandair Group versnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Andri.
Sko! Ef þetta ár er það versta sem greinin hefur gengið í gegnum, eins og þessi forstjóri segir, þrátt fyrir að hagnaður sé 4 milljarðar, þá geta þessir andskotar ekki kvartað!!!
Kveðja, Sigurjón
Sigurjón, 30.11.2009 kl. 18:41
Sigurjón,
Þeir spinna þetta á þann veg sem hentar þeim. Best að tala um tap eftir skatta svo ekki komi upp umræða um hátt flugmiðaverð. Allt á sömu bókina lært.
Andri Geir Arinbjarnarson, 30.11.2009 kl. 18:51
Einmitt. Takk fyrir það.
Kv. Sigurjón
Sigurjón, 30.11.2009 kl. 19:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.