20.6.2009 | 15:06
Doktorsnám á Íslandi er út í hött
Léleg nýsköpun er varla doktorsleysi að kenna. Ætli skortur á fjármagni og smæð íslenska markaðsins eigi ekki meiri þátt í þeirri stöðu.
Það er út í hött að bjóða upp á master- og doktorsnám á Íslandi nema í íslensku og jarðfræði. Embættispróf í læknisfræði, lögfræði og guðfræði á heima í Háskóla Íslands annars eiga kandídatar að fara utan til framhaldsnáms eins og tíðkaðist hér fyrr á árum.
Erlent háskólanám eykur víðsýni, myndar ómetanleg tengsl og færir okkur nýjungar og tækni sem íslenskir háskólar geta aldrei boðið upp á.
Svo er erlent háskólanám mikilvægur starfslykill fyrir fólk bæði að stöðum hér á landi og erlendis. Það gerir fólk samkeppnishæfara, eykur þeirra atvinnumöguleika og styrkir samningsstöðu þess gagnvart atvinnurekendum.
Ekki má gleyma að hinn persónulegi ávinningur af erlendu námi er gríðarlegur, sérstaklega í því ástandi sem nú ríkir. Þetta skiptir einstaklinginn máli.
Stúdentar verða að huga að þeim fórnarkostnaði sem íslenskt framhaldsnám hefur í för með sér. Hér fer hagur nemenda og kennara ekki endilega saman!
![]() |
Íslendingar hafa verk að vinna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þetta er dálítið mikil alhæfing þó margt sé til í þessu hjá þér. Doktorsnám við íslenska háskóla á fullan rétt á sér EN mikilvægt er að það sé sterk tenging við topp háskóla erlendis. Háskólar án doktorsnema eru eiginlega bara súper-menntaskólar, engir háskólar í raun.
rúnar (IP-tala skráð) 20.6.2009 kl. 16:43
Rúnar,
Alveg sammála, íslenskir háskólar eru ekki það sem nefnist "University" á erlendum málum. Þetta er það sem nefnist "College" þar sem ekkert framhaldsnám fer fram. Því fyrr sem við hættum þessum blekkingarleik því betra.
Doktorsnám í íslensku og jarðfræði á rétt á sér hér.
Andri Geir Arinbjarnarson, 20.6.2009 kl. 16:57
Já þetta er rétt hjá þér forsendan er náttúrulega að það verði gríðarlega aukið fjármagn í rannsóknir og þróun. Án þeirra forsenda er þetta náttúrlega út í hött. Þetta er "Collage" það fer nær áherslan er öll á kensluhlutan.
Gunnr (IP-tala skráð) 20.6.2009 kl. 17:30
Gunnar,
Stjórnvöld hafa skipað HÍ að setja kennslu í fyrirrúm og draga úr rannsóknum. Það kostar peninga að halda uppi góðum samböndum við erlenda topp háskóla, eitthvað vilja þeir hafa upp úr slíku sambandi og ef engar eru rannsóknirnar þá dvínar þeirra áhugi. Það eru einfaldlega engir peningar til að halda úti sæmilegum háskóla hér.
Andri Geir Arinbjarnarson, 20.6.2009 kl. 20:51
Það er mikið til í þessu hjá þér. En vis versa væri líka gott að geta boðið upp á doktorsnám á einhverjum sérsviðum t.d. sjávarútvegsfræðum, jarðhita og orkusviðum til svo ég nefni eitthvað.
Arinbjörn Kúld, 21.6.2009 kl. 03:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.