11.5.2009 | 10:06
.. en dróst saman um rúm 30% mælt í evrum!
Frétt um verðmætaaukningu sjávarafurða er ansi misvísandi þar sem erlendir neytendur kaupa okkar vörur í gjaldeyri. Verðmæti dróst saman um 23% mælt í evrum á sama tíma og magn jókst um 12.5%.
Einingaverð hefur því falli um rúm 30% mælt í evrum.
Það sem skiptir öllu máli er kílóverð greitt af kaupanda í evrum.
Þessar fréttir eru farnar að minna á fréttir úr Prövdu frá Sovéttímanum. Ein slík gekk út á það að alifuglaframleiðsla hefði aukist um 300% í einu stærsta héraði í Síberíu. Þegar nánar var að gáð fjölgaði hænum þar úr 3 í 9!
Verðmæti jókst um 42,3% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það er ótrúlegt að það sé verið að bera svona fréttir á borð fyrir okkur. Hvaða tilgangi þjónar það að draga upp falska mynd af raunveruleikanum?
Þetta er ábyrgðarhlutur. Einmitt svona hefur verið logið að þjóðinni á síðustu árum. Ástandið sagt vera allt annað en raunveruleikinn var. Það varð til þess að almenningur uggði ekki að sér og tapaði því stórfé í bankahruninu. Sumir misstu aleiguna af því að þeir trúðu því sem borið var á borð fyrir þá af fjölmiðlum landsins.
Það á að kalla menn til ábyrgðar fyrir lygar eins og þessar og draga þá fyrir dómstóla.
Það á ekki að líða mönnum að ljúga með þessum hætti að þjóðinni, þessari lygaþvælu fjölmiðla verður að ljúka.
Friðrik Hansen Guðmundsson, 11.5.2009 kl. 12:54
Markaðsaðstæður og árangur af lénssovétkerfi kvótagreifanna.
Skuldasúpa í þokkabót og engin raunhagræðing.
TH (IP-tala skráð) 11.5.2009 kl. 13:49
Það virðist vera í gangi einhver múgsefjun sem gengur út á að segja bjartsýnisfréttir og ráðskast með tölur og dagsetningar.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.5.2009 kl. 16:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.