Njóta aðgerðarleysis og vanhæfni

Ætli það láti ekki nærri að Dagur baði sig í ljósi aðgerðarleysi stjórnvalda og vanhæfni hinna flokkanna heldur en framtakssemi síns eigin flokks. 

Sú staðreynd að núverandi stjórn skuli varla minnast á ríkisfjármálin í því ástandi sem nú ríkir ber vott um annað hvort vanhæfni eða pólitíska hentisemi.

Hið ítarlega aukafjárlagafrumvarp írsku ríkisstjórnarinnar fyrr í þessari viku sýnir betur en flest annað hið algjöra tómarúm og afskiptaleysi sem ríkir hjá öllum íslenskum stjórnmálaflokkum í þessum mikilvæga málaflokki.

Svo virðist vera að flokkarnir hafi gefist upp og afhent AGS stjórnvöldin í fjármálaráðuneytinu.  Eða hvað? 

Ætli jafn ítarlegt niðurskurðar og skattahækkana frumvarp og írsk stjórnvöld hafa birt liggi niðri í skúffu hjá fjármálaráðherra?  Það sé hins vegar svo pólitísk eldfimt að ekki megi einu sinni minnast á það hvað þá ræða það. 


mbl.is Njótum góðra verka ríkisstjórnarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband