3.4.2009 | 16:19
Prinsipp maður
Hér er réttur maður á réttum stað. Gunnar þekkir til bankastarfsemi og þeirra sem eiga líklega mestan þátt og ábyrgð í hruninu. Þetta er mikilvægt.
Gunnar hefur sýnt og sannað að hann er heiðarlegur prinsipp maður sem stendur og fellur með sinni sannfæringu.
Reynsluheimur Gunnars er víðari og fjölbreyttari en gengur og gerist meðal Íslendinga svo honum mun reynast auðvelt að innleiða alþjóðleg viðurkennd vinnubrögð innan FME.
Ég óska Gunnari vel gengis í nýju starfi og starfsmenn FME mega vera stoltir af sýnum nýja yfirmanni.
Gunnar Andersen forstjóri FME | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Mér sýnist allir vera á þessari skoðun. Skrúfa fyrir mína tortryggni
Finnur Bárðarson, 3.4.2009 kl. 16:31
Gefum manninum tækifæri. Sýnist þetta vera gegnheill maður.
Arinbjörn Kúld, 4.4.2009 kl. 11:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.