9.3.2009 | 10:15
Illum og Magasin á brunaútsölu!
Aldrei hefur ein þjóð keypt jafn mikið af erlendum eignun á jafnskjótum tíma og á jafn háu verðið til að neyðast síðan til að setja allt á brunaútsölu án þess að geta sér litla björg veitt. Eftir standa lánin, eignirnar farnar til útlendinga á spottprís og orðstír þjóðarinnar í molum. Hvað gerist næst? Nú er allir helstu bankar landsins fallnir. Sparisjóðirnir standa veikum fótum og bæði almenningur og fyrirtæki landsins eru í bullandi skuldum. AGS hefur ákveðið að ráða til sín starfsfólk með bækistöðvar á Íslandi. Hvað veit AGS sem ekki má segja þjóðinni svona 5. mín fyrir kosningar? Til að bæta gráu ofan á svart er einn stærsti stjórnmálaflokkur landsins forystulaus. Við lifum á viðsjárverðum tímum og því miður bendir margt til að botninum sé ekki náð.
Fall Straums gæti haft miklar afleiðingar í Danmörku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Athyglisvert að sjá að lífeyrissjóðirnir tapa milljörðum af bókfærðum eignum sínum við þetta gjaldþrot.
Nornaveiðari (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 10:35
Lífeyrissjóður Verslunarmanna hefur t.d. tapað 2,1 milljörðum á hlut sínum í Straumi frá upphafi bankahrunsins í septemberbyrjun 2008. Sorglegt.
Guðmundur Ásgeirsson, 9.3.2009 kl. 12:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.