15.5.2009 | 09:08
Ekki spara hér
Þessi frétt um að ríkið sé að borga 22 ráðherralaun minnir mig á verkefni sem ég eitt sinn vann að sem ráðgjafi í Bretlandi.
Verkefnið fólst í að ná niður kostnaði í höfuðstöðum tryggingarfélags. Ein tillagan gekk út á að fyrirtækið seldi bílaflota sinn sem það hélt úti fyrir yfirmenn sína og breytti einkabílastæðum í almenn bílastæði fyrir alla starfsmenn. Þetta fékk góðan hljómgrunn hjá stjórn fyrirtækisins og var samþykkt með einni undantekningu: bifreiðahlunnindi og einkabílastæði stjórnarformanns og forstjóra voru undanskilin sparnaði!
Um að gera að spara, bara ekki hér, er þetta heilkenni stundum kallað og mun vera mjög útbreytt.
Við eigum eftir að fá mikið af svona fréttum á næstunni.
22 á ráðherralaunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.