1.5% vextir á almennri sparisjóðsbók

Landsbankinn tilkynnti nýja vexti í dag og þar er heldur betur tekið úr pyngju ellilífeyrisþega og sparifjáreigenda.  Sjaldan hefur sparnaður landsmanna brunnið upp á báli verðbólgunnar eins og nú. 

Stýrivextir eru 12% og verðbólga yfir 13% en vextir hjá Landsbankanum á sparisjóðsbók er 1.5%.  Hæstu vextir á vörðunni eru 7.30%  á sparnað yfir 60,000,000.00 

Það er greinilegt að í krafti gjaldeyrishaftanna hefur ríkisstjórnin valið að skattleggja sparifjáreigendur bakdyramegin.  Hvers vegna er þetta hvorki kynnt né rætt í fjölmiðlum? 

Eru 12% stýrivextir Seðlabankans bara sýndarmennska?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnar Guðmundsson

JA JÁ

Arnar Guðmundsson, 21.7.2009 kl. 14:34

2 identicon

Er þetta ekki bara hugsað til þess að koma peningunum í umferð?

Nú hætti fólk að spara því það borgar sig ekki og fer að eyða og skapar þar með atvinnu?

Björn I (IP-tala skráð) 21.7.2009 kl. 15:25

3 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Björn,

Ef það væri hugsunin þá ætti Seðlabankinn að taka af skarið og lækka stýrivexti myndarlega.  Það er ekkert land með innlánsvexti í kringum 5% og útlánsvexti um 15% eða yfir 10% vaxtamun.  Það verða feitar arðgreiðslurnar til nýju eigendanna.

Andri Geir Arinbjarnarson, 21.7.2009 kl. 18:12

4 Smámynd: Kama Sutra

Með þessu áframhaldi fer að borga sig að geyma peningana sína undir koddanum...

Kama Sutra, 21.7.2009 kl. 19:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband