Réttur maður á réttum stað

Enginn Íslendingur hefur meiri reynslu og þekkingu af flugrekstri en Sigurður Helgason.  Ef fagleg sjónarmið ráða koma fáir aðrir Íslendingar til greina sem formaður stjórnar Icelandair.

Þegar Sigurður lét af störfum hjá Icelandair var það stöndugt og vel rekið fyrirtæki.  Í dag er það rjúkandi rúst, þökk sé Hannesi Smárasyni sem virðist hafa haft það eitt að sjónarmiði að komast yfir fjármuni félagsins sem hann síðan brenndi á báli glæfralegra fjárfestinga, svo ekki sé sterkara að orði komist.

Það verður mikið verk fyrir Sigurð að koma Icelandair í stöndugt form aftur, en í það verk er Sigurður réttur maður á réttum stað.

 


mbl.is Sigurður aftur til Icelandair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnar Guðmundsson

HANNER EGODUR MAÐUR

Arnar Guðmundsson, 21.7.2009 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband