Norðmaður skýrir frá aðgerðum í ríkisfjármálum!

Það er ansi hart að þjóðin þurfi að heyra um aðgerðir í ríkisfjármálum frá norska Seðlabankastjórnum. Svein segir: "Gert er ráð fyrir verulegum niðurskurði útgjalda hins opinbera og að skattar verði hækkaðir, auk annarra tekjuaukandi aðgerða sem kæmu til framkvæmda í áföngum fram til ársins 2011."

Ekki gerir Seðlabankinn ráð fyrir þessu nema að hafa eitthvað í höndunum sem er meir en íslenskir kjósendur hafa.  Er það þetta sem Steingrímur og Jóhanna eiga við þegar þau segja "allt upp á borðir" og "upplýsingar til almennings" en fyrst til norska ríkisborgarans Svein Harald!  

Er Osló yfir Reykjavík?
mbl.is Umtalsverð vaxtalækkun í júní
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða fokking máli skiptir það hvaða þjóðerni menn hafa? Það kemur málinu ekkert við hvort að maðurinn er Norðmaður eða Íslendingur! Hvílíkur þjóðernishroki. Það á ekki að skipta neinu máli hvaða ríkisborgararétt menn hafa, heldur hvaða hæfileika þeir hafa og ekkert annað.

Hermann (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 12:54

2 identicon

Þegar að við íslendingar getum ekki stjórnað okkar eigin efnahag, þá verður að fá aðra í verkið, eins og gert hefur verið.

Erfitt er að horfast í augu við það, en svona er þetta einmitt.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 7.5.2009 kl. 13:16

3 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Í flestum lýðræðisríkjum er það ríkisstjórn sem er við völd sem kynnir aðgerðir í ríkisfjármálum til skattgreiðenda sinna. 

Andri Geir Arinbjarnarson, 7.5.2009 kl. 14:03

4 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Svo verður áfram við lýði sú stefna að upplýsa almenning í landinu ekki um stöðu mála.

Arinbjörn Kúld, 7.5.2009 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband