Ekki sama hvernig hlutunum er stillt upp

Þjóðaratkvæðisgreiðslur eins og skoðanakannanir geta oltið á hvernig hlutunum er stillt upp og spurningar orðar.

Tökum dæmi.  Íslendingar ætla að standa við skuldbindingar sínar.  Hvernig ætli þjóðaratkvæði færi en spurt væri:

Veljið einn af tveimur möguleikum:

1. Ríkisstjórnin tekur lán á 5.5% vöxtum með ríkisábyrgð

2. Ríkisstjórnin tekur lán á 7.0% vöxtum með takmarkaðri ábyrgð

 

Spurt er hér til vinstri fyrir þá sem hafa áhuga.


mbl.is Meirihluti styður forsetann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki hægt að kjósa um þetta. Einföld staðreynd.

Sveinbjörn (IP-tala skráð) 6.1.2010 kl. 12:59

2 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Það verður að hafa textann lagalega kórréttan. Því verður hann eins og tillaga ríkisstjórnarinna segir. Annað er ekki hægt.

En hvað eiga þeir sem ekki vilja borga að gera?

Sitja heima? Skila auðu eða ógildu?

Báðir kostirnir sem eru í boði snúast um að greiða - bara á mismunandi skilyrðum.

„Við borgum ekki“ fólkið getur ekki sagt já og ekki nei.

Hjálmtýr V Heiðdal, 6.1.2010 kl. 13:14

3 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Það verður ansi mikil ósymmetría í þessari þjóðaratkvæðisgreiðslu.  Ef sagt er já er kostnaðurinn nokkuð vel skilgreindur en hins vegar ef sagt er nei þá ríki algjör óvissa um heildarkostnaðinn.  Hann gæti orðið lægri en líka hærri.

Hættan er að fólk einblíni á þekktan kostnað við já og haldi að með því að segja nei minnki kostnaðurinn án þess að hafa neitt í höndunum.  

Það verður ekkert smámál að kynna þetta fyrir fólki.

Andri Geir Arinbjarnarson, 6.1.2010 kl. 13:36

4 Smámynd: Kristinn Pétursson

Ég vel viðræður nýjan samning (það er enginn samningur nú) með hæstu Libor vöxtum + 5 punkta álag ( eða föstum vöxtum 2,5% þar sem þetta er uppgjör af sameiginlegu  fjármlaslysi vegna galla í eftirlistregluverki ESB - með "frjálsu flæði fjármagns" )

og frá Icesave kröfunni - dragist að Bretar borgi tjónið vegna hryðjuverkalaganna - metið af hlutlausum alþjóðlegum greiningarfyrirtækjum að frádregnum "hagnaðinum" sem Bretar náðu með beitingu hryðjuverkalaganna sem dregst þá frá bótakröfu okkar á þá ef einhverslíkur "hagnaður" finnst.

Kristinn Pétursson, 6.1.2010 kl. 14:09

5 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Kristinn - er ekki betra að ganga lengra og kjósa að árið 2000 sé komið til baka og við nýtum reynsluna úr framtíðinni (2000 - 2010) til að koma í veg fyrir vitleysuna.

Ég held að þetta sé jafn raunhæft og þín hugmynd um samninga við Breta á þeim nótum sem þú leggur fram

Hjálmtýr V Heiðdal, 6.1.2010 kl. 15:12

6 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Ekki gleyma að ef Bretar og Hollendingar segja upp síðasta samningi þá þarf enga þjóðaratkvæðagreiðslu.  Allt er þetta mál með þeim endemum að maður skammast sín fyrir forsetann og þingið. Þó að þjóðin sé heimsk og veruleikafirrt á hún ekki skilið svona forsvarsmenn

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 6.1.2010 kl. 17:02

7 identicon

http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item319764/ 

Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, telur mikilvægt að menn haldi ró sinni vegna neitunar forsetans á Icesave-lögunum. Hún bendir á að samningur við Breta og Hollendinga gildi langt fram í tímann og því liggi ekkert á.

Hún segir að forsetinn hafi tekið erfiða ákvörðun gegn þinginu og ríkisstjórninni. Forsetinn sé að leika mjög lýðræðislegan leik að leyfa almenningi að ákveða sína eigin framtíð. Hún beri mikla virðingu fyrir ákvörðun forsetans.

Ber meiri virðingu fyrir skoðunum Evu Joly heldur en íslenskra stjórnmálamanna sem stjórnast af hatrömmum flokkslínum. Almenningur á Íslandi hefur öðlast raunverulegan skjólstæðing - einstakling sem er reiðurbúinn að standa með landinu og sjá hlutina í víðara samhengi.

Björn Kristinsson (IP-tala skráð) 6.1.2010 kl. 17:42

8 Smámynd: Kristinn Pétursson

Ég er einn af stuðnigsmönnum Evu Joly hérlendis og myndir treysta henni best  af öllum til að leiða hóp fagmanna - meða þverpólitískt bakland frá Íslandi - til að lenda málinu.

Kristinn Pétursson, 6.1.2010 kl. 18:55

9 Smámynd: Kama Sutra

Ég held að flestir sem skráðu sig á Indefence-listann hafi haldið að þjóðaratkvæðagreiðslan yrði einhvern veginn svona:

Viltu skulda?

1.  Já

2.  Nei

Kama Sutra, 6.1.2010 kl. 19:31

10 identicon

Hvað felst í takmarkaðri ábyrgð? Á hvern eða hvað fellur ábyrgðin við þrot?

Persónulega þá tel ég litlar líkur á því að fá meira en 50% fyrir eignir LAIS. (Sigurjón digri et al mokaði út miljörðum í Rauðsól og Decode í dauðatygjunum...for christ sake.)

Þrándur (IP-tala skráð) 6.1.2010 kl. 22:11

11 identicon

Sæll,  hvað segir þú um skoðanir þessara aðila í UK.

 http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/01/07/ekki_setja_island_i_skuldafangelsi/

Meira að segja virðulegir bretar  standa með íslandi en ekki þú.........

Val (IP-tala skráð) 7.1.2010 kl. 08:06

12 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Val,

Það sem bjargar okkur erlendis er hversu óvinsæll Gordon Brown er.  Svo eru Breta alltaf svagir fyrir litla aðilanum - the underdog.  Í Bretland eru að koma kosningar og ekki einu sinni menn innan Verkamannaflokksins eru ánægðir með Gordon Brown.

Þetta snýst ekki um að standa með eða á móti Íslandi heldur hvaða leið er farin.  

Andri Geir Arinbjarnarson, 7.1.2010 kl. 11:13

13 identicon

Það skiptir miklu máli hvernig spurningin á kjörseðlinum verður skrúfuð saman eins og þú bendir en þetta er ekki vandamál ef menn halda sig við meginatriðið sem er hvort lögin eigi að taka gildi eða ekki.

Þjóðaratkvæðagreiðslan er ekki skoðanakönnun heldur bindandi atkvæðagreiðsla sem fjallar eingöngu um hvort lögin sem samþykkt voru af meirihluta þings eiga að taka gildi eða ekki. Ég sé ekki að það geti verið einfaldara fyrir kjósendur. Með hvaða rökum kjósendur rökstyðja atkvæði sitt skiptir engu máli - þannig er lýðræðið.

Niðurstaða í þjóðaratkvæði róttæk endanleg niðurstaða sem ekki er hægt að breyta nema með nýrri þjóðaratkvæðagreiðslu -

Þráinn Kristinsson (IP-tala skráð) 7.1.2010 kl. 11:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband